Handsome Hawk

21.12.01

Haukur Gunnarsson @ 11:08

Þórir.....
Djöfull ertu hörundssár. Þú klúðraðir, svo einfalt er það, þannig að þú átt ekki að vera með neitt skítkast út í mig heldur Egil.

19.12.01

Haukur Gunnarsson @ 12:56

Ahhh
Mikið er nú gott að vera búinn í prófunum, sérstaklega þegar manni gengur svona vel. Ég er nú þegar búinn að hringja í Egil og láta hann vita að ég sé búinn í prófunum en hann á eitt próf eftir og er að læra á meðan ég er að fara að slappa af. Ég er svo sáttur við prófin mín að ég neyðist til að eyða miklum peningum um jólin í sjálfan mig enda kominn með 100% námslán. Gleðin er svo mikil að ég gæti skrifað nokkrar síður um ágæti mitt en nenni því ekki og hef því bara eitt að segja.......

Þórir, ertu alvega að missa það, þetta var lest sem festist í Grikklandi útaf snjó en ekki flugvél. Hélstu kannski að flugvélin væri föst í skafli í 30000 feta hæð og snjóruðningstæki væru á leiðinni til að ryðja snjóinn burt, ha ha ha ha ha.
Og ekki koma með eitthvað gáfulegt komment um það að þú hafir átt við að hún væri föst á flugbrautinni því það er ekki það sem þú áttir við.
.

18.12.01

Haukur Gunnarsson @ 08:54

YEEEEEESSSSSSS such endless joy. Einn dagur af hörku hjá mér og síðan bara stuð. En fyrir hina veikgeðju, tveir dagar af hörku. Svona er það að vera ekki hönk eins og ég og eitthvað meira sem ég nenni ekki að hugsa upp.
Tja, ég hef ekkert að skrifa, ólíkt sumum sem virðast alltaf finna eitthvað ómerkilegt til að segja frá, og segi því ekkert meira.
.

14.12.01

Haukur Gunnarsson @ 10:49

Egill skíthæll
Ástæðan fyrir því að ég hef ekkert skrifað í langan tíma er vegna þess að ég er í prófum, annað en þú augljóslega. Nám mitt er mér mikið hjartans mál og beini ég því öllum mínum kröftum að bókunum en ligg ekki í leti eins og þú. Þórir hefur ekki bloggað jafnmikið og þú síðustu daga sem endurspeglar hvað þú ert að gera. Þú ert svo latur að þú finnur sífelldar afsakanir til þess að þurfa að fara á netið, ég skal lofa þér því að engum þykir það merkilegt hversu nýi ostaskerinn er leiðinlegur. Þú ert haugur og er lítið við því að gera.

Og hættu svo að grafa upp vibbamyndir af fólki þ.e.a.s. mér, en þú mátt finna vibbamyndir af öðrum. Svo fór ég bara einu sinni í gegnum Lord of the Rings prófið og það er þáverandi skeggi mínu að þakka að ég fékk þetta út. Sættu þig við þetta ég er einfaldlega tákn karlmennskunnar en þú lítil hobbitatík.

Þetta eru stór orð en þetta eru einfaldlega staðreyndir og þú verður bara að sætta þig við þetta. Skíthæll!!!!!!!!!!
.

10.12.01

Haukur Gunnarsson @ 07:57

Ég er víst Aragorn samkvæmt þessari Hringadróttinskönnun. Reyndar ber að taka það fram að ég hef ekki rakað mig í rúma viku og endurspeglar það karlmennskuímynd mína, ég er ekki Hobbita pussa eins og sumir.

Aragorn

Aragorn

If I were a character in The Lord of the Rings, I would be Aragorn, Man of the West, leader of the Rangers who guard the hobbits

.

template by wicked design