Handsome Hawk

22.5.02

Haukur Gunnarsson @ 16:09

Fólk verður síðan að fara að drífa sig að skila inn umsóknum varðandi starfið sem felur í sér "hvarf" meðlima Írafárs. Fresturinn rennur út nk. mánudag.



Haukur Gunnarsson @ 16:07

Það er gott að vita til þess að ég þarf ekki að bóna bílinn minn né þrífa herbergið mitt vegna þess að í kvöld mun ég eignast tvo þræla sem sjá um svoleiðis leiðindi......
Annars nenni ég ekki hálfur að blogga af einhverju viti......ég vil þó ráða fólki frá því að kaupa tæpt kíló af vínberjum og borða þau öll í einu.
Frammistaða mín á knattspyrnuvellinum hefur greinilega vakið mikla athygli hér á landi þar sem tveir útsendarar frá FH komu á leikinn hjá okkur í gær eingöngu til þess að fylgjast með mér. Reyndar var leikur minn ekki uppá marga fiska en eins og komið hefur fram þjáðist ég af slæmu hælsæri sem hamlaði leik mínum töluvert. Síðan vil ég benda rauðhærða gaurnum sem sat uppi í stúlku í gær og hegðaði sér dólgslega að skoða sinn gang. Margir höfðu orð á þessu við mig og var ég þeim sammála um að menn ættu ekki að vera að bera sig á almannafæri nema í þeim tilgangi að hlaupa inná völlinn, það að hlaupa um á bossanum uppí stúku eltandi einhverja varnarlausa mongólíta er alls ekki við hæfi.

17.5.02

Haukur Gunnarsson @ 15:54

Þetta segir einfaldlega allt sem segja þarf......





Which Royalty Are You? Find out! By Nishi.

16.5.02

Haukur Gunnarsson @ 12:53

Sumar ættu að nota sögnina "að vita" svolítið minna til þess að draga úr komandi skell sem hún mun fá á næstunni. Sá sem "veit" veit betur heldur en að standa í einhverju rifrildi við skíthælinn og eiginhagsmunasegginn um eitthvað sem hann nennir ekki að gera. Sá sem "veit" æsir sig ekki útaf einhverju sem svona lítilmenni segja og gera.

template by wicked design