Handsome Hawk

19.7.02

Haukur Gunnarsson @ 10:50

Egill.....hvurslags......þú vissir mætavel að ég var að vinna undercover þegar ég fór með þér að versla. Nú er allt unnið fyrir bí þar sem þú hefur komið upp um gervi mitt. Þú hefur kostað embætti ríkistískulögreglustjóra stórfé með því að opna munninn á þér.

Innan skamms færðu sendan reikninginn frá mér sem og sekt fyrir að hindra opinber störf löggæslunnar. Það er mönnum eins og þér að þakka að menn á borð við Frikka Weiss......ganga enn lausir á götum borgarinnar!

10.7.02

Haukur Gunnarsson @ 18:09

Egill þú ert svo ófrumlegur. Getur aldrei gert neitt annað en tekið undir eitthvað sem fólk segir eða skrifar. Þú kemur aldrei með neitt frá hjartanu.
Ég er einfaldlega að benda þér á það að þú sért ræfill.

Hinsvegar eru fáir ef nokkrir sem þurfa að leggja á sig jafnmikla vinnu og hann Egill, ég get ekki ímyndað mér þær kvalir sem hann þarf að líða á þessum vöktum sínum. Þetta er án efa erfiðisvinna enda fær maður alltaf að vita hversu bágt hann á þegar maður hefur samband við hann. Ræfill

template by wicked design