Handsome Hawk

30.1.03

.:Haukur Gunnarsson:. @ 19:52

Lyklaborðið mitt er enn ónothæft...........það drakk yfir sig af kóki og verður netheimur því að vera án viskumola minna enn um sinn. Annars er bara sumt kúl og annað ekki!

25.1.03

.:Haukur Gunnarsson:. @ 10:01

Ehhhhhhh...............já......ég er víst ekkert sérstaklega greindur. Hélt víst ekki þokka í nótt.

20.1.03

.:Haukur Gunnarsson:. @ 21:47

Það hefur einhver fáviti stolið besta sænguverinu mínu. Mér er skapi næst að banka á allar íbúðir og leita í þeim. Komist ég að því hver gerði þetta mun ég koma til með að taka öll föt viðkomandi og þvo þau á 90°. Ég vona að þessi ræfill og aumingi, sem ég væri til í pína á hrottafenginn hátt, sofi ánægður með sængurverið mitt vitandi það að ég hef skilið eitt og annað eftir í því.



.:Haukur Gunnarsson:. @ 20:47

Vóóóóó..................þetta er heavy!



.:Haukur Gunnarsson:. @ 20:05

Líkt og hjá Agli er líf mitt ekki dans á rósum. Ég fór nebblinlega í Hagkaup í Kringlunni til þess að versla í matinn, er víst kominn í sparnaðarátak þ.e. má bara kaupa helstu nauðsynjar t.d. bjór og mat. Álpaðist náttúrulega inní Skífuna eins og hálfviti og það í miðri útsölu. Æddi beint í flasið á dvd diskunum og var næstum búinn að missa mig, skyndilega var ég kominn með tvo dvd Friends og var að leita að einhverri mynd. Þá gerði ég mér grein fyrir því hvað ég var að gera og hófst þá mikið sálrænt stríð sem endaði með því að ég gekk út með ekki neitt. Ég bjóst við því að mér myndi líða vel eftirá þar sem ég var svona duglegur strákur en mér líður bara alveg jafn illa.............ég verð að kaupa eitthvað!!!!!!!!!!

19.1.03

.:Haukur Gunnarsson:. @ 22:31

Griffo Sandybanks of Frogmorton.......þetta er víst hobbitanafnið mitt samkvæmt þessari síðu og þetta er álfanafnið mitt, Angaráto Telemnar. Mannanafnið mitt var Haukagorn son of Gunnarþorn.



.:Haukur Gunnarsson:. @ 21:14

Mér finnst auglýsingarnar um HM í handbolta alveg hrikalega hallærislegar, þær eiga að vera eitthvað kúl og kannski röff en eru bara glataðar.

Annars verð ég að koma því á framfæri að það var föngulegur hópur karlmanna sem gekk inná gervigrasvöllinn niðrí Laugardal um áttaleytið í kvöld. Var ég þó sá föngulegasti enda með eindæmum þokkafullur. Reyndar er ég stórskaddaður í framan eftir að hafa dottið á andlitið.........en eftir að hafa skoðað sjálfan mig í spegli í dágóða stund komst ég að því að áverkarnir höfðu lítið að segja.....kynþokkinn fór hvergi og ber ég því nafn mitt með rentu!

Ú já meðan ég man............körfubolti er hallærislegur, það nennir nánast enginn að fylgjast með þessu hvað þá að stunda þetta. Hvet ég því alla körfuboltamenn sem og þá fáu sem kallast geta körfuboltaáhugamenn til þess að hætta þessari vitleysu. Þetta er LEIÐINLEGT og mér til mikils ama.

16.1.03

.:Haukur Gunnarsson:. @ 20:31

Æi.....akkurru þurfa þessi kanafífl að vera að æsa alla upp í það að fara í stríð. Nú hækkar bensínverð og ég þarf því að punga út meiri pening fyrir bensíni.
Helvítis kanahálfvitar........hvað kemur það ykkur við hvað er að gerast í Miðausturlöndum? Hættiði að skipta ykkur af öllu því sem ykkur kemur ekki við..............og 11. sept er ekkert miðað við það sem þið hafið gert öðrum. Þessi djöfulsins yfirgangur í ykkur kostar mig pening........æi til hvers er ég að tuða, það hlustar hvort eð er enginn á mig!

14.1.03

.:Haukur Gunnarsson:. @ 19:02

Ég er nú ekki vanur að hrósa sjálfur mér en eftir kvöldmatinn sem ég mallaði í kvöld verð ég að segja að ég er sannkallaður listamaður með Vok pönnuna mína. Ekki veit ég hvort bragðlaukar mínir fá nokkurn tímann framar að kynnast slíkri snilld nema þá að ég taki fram pönnuna á ný og gefi mig allan í eldamennskuna.



.:Haukur Gunnarsson:. @ 17:36

Ég gerði mér ekki grein fyrir því í dag þegar ég fór að versla skólabækurnar að þar yrði allt morandi í fólki sem stundar sitt nám aðallega hinumegin við Suðurgötuna þ.e. heimspekilið, mannfræðingar, kynjafræðingar o.þ.h. Þetta var frekar óþægilegt enda var ég bara einn á ferð og umkringdur undarlegu og óútreiknanlegu fólki. Svona geri ég ekki aftur!



.:Haukur Gunnarsson:. @ 16:26

Þessa stundina er einhver hálfviti að rappa lose yourself á popptíví í þeim tilgangi að fá húfu og peysu. Það versta við þetta er að strákfíflinu finnst þetta kúl.

13.1.03

.:Haukur Gunnarsson:. @ 14:48

Ég er búinn að ná mér í einhvern helvítis pestar viðbjóð og er sárþjáður. Ansi hræddur um að þetta sé handsomus kynþokkus sem ég þjáist af. Þessi óbjóður er meinlaus fyrir þá sem eru ekki jafnvel skapaðir af náttúrunnar hendi og ég, hrein blessun þar sem þetta getur aukið kynþokka minni manna og kvenna. Útlit manna er hinsvegar bara hægt að laga hjá lýtalækni, því dugar það Magga skammt að koma hingað til þess að reyna að smitast.
Leggist þetta hinsvegar á gaura eins og mig verða menn alvarlega veikir. Var ég því fljótur að drífa mig útúr tíma í dag þegar Egill mætti enda hefði smit orðið hans bani þar sem hann er mun kynþokkafyllri en ég og gæti þetta dregið hann til dauða.

Ég á því geðveikt bágt núna, mamma svaraði ekki þegar ég hringdi í hana til þess að láta hana vita að litli augasteinninn hennar og einkasonur væri fársjúkur......kannski ég hringi bara í ömmu. Það þarf einhver að vorkenna mér. Arrrggggggg..........ég er farinn að hljóma eins og Egill.

12.1.03

.:Haukur Gunnarsson:. @ 18:31

Ég var búinn að skrifa einhvern massapistil um Össur og Ingibjörgu, aka. Harry and Lloyd, en ákvað að sleppa því bara að tjá mig um þetta lið, aðallega Össur........nei, ég stenst ekki freistinguna.

Ég þoli ekki Össur og vona að allir sjái í gegnum þetta prumphænsni, sérstaklega þó kvenfólk þar sem Össur kom því á framfæri í "Ísland í dag" að Samfylkingin væri forystuflokkur í baráttu fyrir jafnrétti o.þ.h. Hann myndi kyssa rassinn á öllum konum landsins til þess að koma flokk sínum til valda.........og hey, það virkaði á Ingibjörgu.....akkurru ætti það ekki að virka á restina. Svo getur þessi ræfill ekki einu sinni viðurkennt það að hann er ekki nógu mikill gaur til þess að leiða flokkinn og þurfti þ.a.l. að víkja fyrir sterkari persónu sem er mun meiri leiðtogi en hann.
Hann er dóni!

11.1.03

.:Haukur Gunnarsson:. @ 21:25

Ef ég væri hommi eða kvenmaður væri þetta maðurinn sem væri efstur á mínum óskalista.......

Ah%2C%20Moody%20Aragorn.
What Lord of the Rings Male and Mood Do You Desire?

brought to you by Quizilla

Annars á þessi lýsing við um mig sem og þær spurningar sem voru í þessu dóti þannig að þetta eru ég og Aragorn sem verið er að lýsa!

Annars er ég alveg hrikalega þreyttur og subbulegur en enda eflaust með Manna rauðhaus niðrí bæ seinna í kvöld. Ég er óstaðfastur aumingi!

10.1.03

.:Haukur Gunnarsson:. @ 18:05

Hvaða gaur er þetta?

Annars fór ég í dag með Eddu í verslunarferð og kom nokkuð sáttur úr henni. Uppskeran var gallabuxur og skyrta.

Svo þarf ég að lesa þessa grein sem Björk á víst að hafa skrifað um virkjanaframkvæmdirnar á Austurlandi, eflaust er þetta mögnuð lesning og mun ég vafalaust koma til með að sjá málið í nýju ljósi......NOT. Hún er bara að gera sig að meira fífli....!

9.1.03

.:Haukur Gunnarsson:. @ 21:22

Komst að því mér til mikillar ánægju að ég var að þvo mér í framan með þvottapoka sem guð má vita hvað er búinn að liggja lengi í hrúgu af skítugum þvotti. Ég tók þá snilldarákvörðun að taka saman þvott rétt áður en ég rakaði mig og hélt þá á hreinum þvottapoka sem ég síðan eflaust tróð í körfuna.......tíminn líður og þegar ég er búinn að raka mig átta ég mig á því að blái þvottapokinn minn er orðinn rauður........I feel so dirty and violated.

Síðan bendi ég öllum á eitt af emailunum hans Manna bölls sem er "violator@simnet.is" og ef þið spilið einhverntímann spyrjiði þá fólk hvort það muni ekki eftir goðsögninni "The Violator........the legend of Everquest".

8.1.03

.:Haukur Gunnarsson:. @ 23:38

VÁÁÁ.........hvað Kolbrún Halldórs er mikil trunta. Það er aðeins eitt verra en samfylkingarmaður sem hefur ofmetnast og það er vinstri græn á frussutúr. Þetta endalausa djöfulsins væl og tuð ætti fyrir löngu að hafa gert hana réttdræpa. Hún líkt og flokksbræður hennar eru á móti öllu og öllum, ekkert má gera........jú, nema byggja tónlistarhús fyrir peninga sem búa á til úr lofti eða einhverju.
Hlusta á þessa belju rökræða við mann, þ.e. Hjálmar Árnason, sem er henni mörgum stigum ofar í öllu er varðar greind og skynsemi en er samt framsóknarmaður gæti knúið hvaða mann til þess að ganga frá henni. Hennar sterkustu rök gegn öllu því sem rætt var um í Kastljósinu í kvöld voru á planinu "af því bara" sem og hin háværu og kröftugu mótmæli við Austurvöll sem farið hafa framhjá flestum landsmönnum. Kolbrún DEYÐU!!!!!!!!!!

Annars sá ég mér til mikillar undrunar kanínu í kvöld þegar ég var að skokka. Reyndar var ég fljótur að forða mér því það hafði einhver útlendingur einnig komið auga á hana og virtist vera að gera sér dælt við hana.

Síðan verð ég bara að minnast á þetta reykingavarnalag með Hreimi, Birgittu, Jónsa og co.....þvílíkur viðbjóður og akkurru læra menn aldrei........svona virkar ekki og mun aldrei virka, það hættir enginn að reykja né heldur kemur þetta í veg fyrir að einhver byrji að reykja. Það þarf bara að banna hluti!!!!!!!

Það eru allir á svo miklu lægra plani en ég......örlög mín eru grimm!

5.1.03

.:Haukur Gunnarsson:. @ 23:55

Fokk hvað lífið er leiðinlegt.......

Leiðinlegasta kvöld lífs míns er loks að renna sitt skeið og átti ég ekki einu sinni bjór til þess að drekka samfara leiðindunum. Ég hata gleði og hamingju og þoli ekki neinn.............það eru allir fífl!

3.1.03

.:Haukur Gunnarsson:. @ 13:51

Það er nokkuð ljóst að engin Kárahnjúkavirkjun verður reist né heldur verður eitthvað um álversframkvæmdir á Austurlandi eftir þessar fréttir. Þetta er mikill fengur fyrir umhverfisverndarsinna enda vita allir að listamenn eru hæfastir til þess að dæma um það hvort rauhæft sé að virkja eða ekki.

Jeminn eini........fólk er fífl!!!!!!!!!!

template by wicked design