Handsome Hawk

21.2.03

.:Haukur Gunnarsson:. @ 15:36

Ég er ansi hræddur um að það sem brotnaði uppúr framtönnunum mínum sl. föstudag vaxi ekki aftur. Þær eru frekar þreyttar þessar "góðu" hugmyndir sem ég fæ á fylleríum, það er víst bara ekkert kúl að naga málmhluti. Ég er búinn að banna líkama mínum að bregðast við á nokkurn hátt er eitthvað sniðugt poppar upp í kollinum á mér þegar ég er undir áhrifum. Þetta er bara rugl!

Annars ætla ég að fara að blogga af krafti að nýju nú þegar ég er að fá nýtt lyklaborð þar sem allir takkarnir virka.

11.2.03

.:Haukur Gunnarsson:. @ 19:02

Jæja loksins er ég kominn með lyklaborð sem virkar, Manni rauðhaus lánaði mér það, og hafa því þeir sárafáu sem leggja leið sína hingað endurheimt tilgang lífs síns. Reyndar virkar ekki i-takkinn sem og fleiri á lyklaborðinu og er ég því óhemju lengi að skrifa.
Allt er komið á fullt í kosningabaráttunni og hef ég reynt að fá fólk til þess að aðstoða mig í þessu og hefur það gengið misvel.........reyndar bara mis.

Annars nenni ég ekki að skrifa meira en hvet alla sem hafa áhuga á að taka þátt í starfinu með Vöku til þess að hafa samband og minni fólk á að kjósa þegar þar að kemur.

template by wicked design